
Héðinn
Héðinn er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni með yfir 100 ára reynslu af þjónustu við sjávarútveg, stóriðju og orkuiðnað, bæði hérlendis og erlendis.
Hjá fyrirtækinu starfa um 150 manns við fjölbreytt störf, allt frá hönnun að fullbúnum vörum ásamt viðhalds- og þjónustuverkefnum um allan heim.
Héðinn leitast við að veita samkeppnishæfa þjónustu á öllum sviðum og leggur mikið upp úr góðri starfsaðstöðu og aðbúnaði. Að auki leggur fyrirtækið áherslu á að fylgja framþróun í tækjakosti eins og unnt er til að auðvelda störf og auka gæði og framleiðni.
Starfsemin snýst einkum um fjölbreytta málmsmíði, vélaviðgerðir, endurnýjun og viðhald og helstu viðskiptavinir eru sjávarútvegsfyrirtæki, orkufyrirtæki, stóriðjufyrirtæki, sveitarfélög og önnur málmiðnaðarfyrirtæki.
Stærstu verkefnin í dag eru fyrir sjávarútveginn og stóriðju. Þessi verkefni spanna allt frá því að reisa fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi eða úti í heimi yfir í umhverfisvæna nýsköpun, viðgerðir og smíði.
Héðinn rekur fimm starfsstöðvar en meginþorri starfsfólks starfar í höfuðstöðvum félagsins við Gjáhellu. Aðrar starfsstöðvar eru þjónustuverkstæði á Grundartanga og útibú á Akureyri og í Noregi.
Húsakynnin við Gjáhellu eru 8.000 fermetrar og lóðin 20.000 fermetrar. Í húsinu er mötuneyti fyrir starfsfólk og glæsileg líkamsræktaraðstaða. Að auki hefur nýverið tekið í notkun stórglæsilegt afþreyingarrými fyrir starfsmenn með golf- og skothermi, píluspjöldum og fleiru sem starfsmenn geta nýtt sér utan vinnutíma.

Rennismiður með reynslu af CNC rennibekkjum og fræsivélum
Héðinn leitar að rennismið með reynslu og þekkingu til starfa á CNC rennibekkjum og fræsivélum.
Á renniverkstæðinu starfar átta manna teymi við fjölbreytt verkefni á manual rennibekkjum, CNC - rennibekkjum og fræsivélum. Aðstaðan er stórglæsileg og verkefnin fjölbreytt og enginn dagur eins.
Með nýjum verkstjóra eru áherslur á gott skipulag, skýr samskipti og að starfsfólk hafi svigrúm til að nýta þekkingu sína og þróast í starfi.
Við leitum að öflugri viðbót í teymið sem getur unnið sjálfstætt á fræsivélum og CNC rennibekkjum.
Áhugasamir sæki um hér á Alfreð eða hafi samband við Óttar verkstjóra á [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna á fræsivélum og CNC - rennibekkjum
- Nýsmíði samkvæmt teikningum
- Viðgerðir og endurnýjanir íhluta
- Viðhaldsverkefni fyrir fjölbreyttan viðskiptahóp
- Þátttaka í að bæta vinnulag og miðla þekkingu innan teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í rennismíði eða mjög víðtæk reynsla af sambærilegum störfum
- Reynsla af fræsibekkjum og CNC rennibekkjum
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur.
- Stórglæsilegt starfsmannarými með golf- og skothermi.
- Líkamsræktaraðstaða og búningsklefar með sturtu.
- Öflugt starfsmannafélag og frábær starfsandi.
Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur19. október 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Gjáhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Reykjavík: Meiraprófsbílstjóri á dælubíl - Stífludeild
Íslenska gámafélagið ehf.

Verkamaður
Fagurverk

Starfsmaður í vöruhúsi Keflavík - 50% starfshlutfall
DHL Express Iceland ehf

Þjónustu og sölufulltrúi óskast til Johan Rönning
Johan Rönning

Umsjónarmaður fasteigna og tækja.
Bónus

Verkamaður - flokkun og vinnsla
Terra hf.

Starf í þrifateymi / Industrial cleaning (with C+E driver´s license)
Nesbú

Sprautumálari og sandblástur // Spray-painter & sandblaster
VHE

Steypuhrærari í Þorlákshöfn
Steypustöðin

Starfsmaður í tiltekt á vörum
Álfasaga ehf