
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg er fjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi. Það varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps. Sveitarfélagið hefur vaxið ört síðastliðin ár og telur nú tæplega 12.000 íbúa. Þar er miðstöð þjónustu á Suðurlandi, góðir skólar ásamt öflugu íþrótta-, félags- og menningarlífi. Starfsmenn sveitarfélagsins eru um 1000 og lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri, þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Starfsfólki í félagslega liðveislu
Félagsþjónusta Árborgar auglýsir eftir starfsfólki í félagslega liðveislu auk annarra starfsmanna í fjölbreytt störf tengd málefnum fatlaðs fólks og stuðningsþjónustu samkvæmt félagsþjónustulögum. Um er að ræða hlutastörf sem henta vel með námi eða öðru starfi og getur vinnutími verið sveigjanlegur.
Markmið félagslegrar liðveislu er að veita einstaklingum félagslegan stuðning sem miðar að því að rjúfa félaglega einangrun og að liðveisluþegi geti notið menningar og félagslífs.
Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri, ábyrgir og jákvæðir. Um er að ræða skemmtileg og lærdómsrík störf, sem krefjast hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæðis í vinnubrögðum. Æskilegt er að viðkomandi hafi bílpróf og bíl til umráða.
Auglýsing birt30. september 2021
Umsóknarfrestur14. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður óskast á Ægisgrund
Garðabær

Starfsfólk óskast í umönnun
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Félagsliði í sértækri heimaþjónustu - Fjölskyldu- og barnamálasvið
Hafnarfjarðarbær

Starfsmenn í heimaþjónustu í Fjarðabyggð
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

Ráðgjafi heim
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

NPA aðstoðarkona í fullt starf!
Forréttindi

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum
Frístundaklúbburinn Úlfurinn