Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Starfsfólk í umönnun

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili rekur tvö hjúkrunarheimili á Akureyri. Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Á hjúkrunarheimilunum er rekin dagþjónusta, mötuneyti, þvottahús, auk þess sem meðal annars er boðið upp á iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, fjölbreytt félagsstarf og læknisþjónustu. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna. Markmið allrar þjónustu sem veitt er á Heilsuvernd Hjúkrunarheimilunum er að tryggja öryggi og vellíðan íbúa og standa vörð um sjálfsmynd þeirra og sjálfsvirðingu.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða starfsmenn í umönnunarstörf á Aspar- og Beykihlíð. Um vaktavinnu er að ræða, starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi, æskilegt starfshlutfall 70-90%. Um tímabundna afleysingu til eins árs er að ræða.

Við leggjum áherslu á jákvæðni og góð samskipti, lipurð í þjónustu og einlægan áhuga á starfi í þjónustu við aldraða. Í boði er vaktavinna og mislangar vaktir.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af störfum með öldruðum er æskileg
  • Þekking á Eden hugmyndafræðinni og reynsla í því að vinna eftir henni er kostur
  • Færni í almennri tölvunotkun
  • Umsækjandi þarf að geta talað og skrifað íslensku
Auglýsing birt3. júlí 2025
Umsóknarfrestur13. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurbyggð 17, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar