Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag er sjálfseignarstofnun með þjónustu við fatlað fólk og hefur í gegnum árin komið á fót umfangsmiklum rekstri. Þá hefur félagið notið velvilja og hafa einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki átt drjúgan þátt í að styðja félagið til vaxtar.
Í dag veitir Ás styrktarfélag hátt á fjórða hundrað manns þjónustu í formi búsetu, dagþjónustu og vinnu. Starfsmenn félagsins eru rúmlega 430 í tæplega 195 stöðugildum.
Starfsfólk á heimili á Kirkjubraut Seltjarnarnesi
Ertu að leita þér að fjölbreyttu, krefjandi og skemmtilegu starfi í vaktavinnu
Ás styrktarfélag leitar að drífandi og áhugasömu starfsfólki til að starfa á nýju heimili fyrir fólk með fötlun á Kirkjubraut 20, Seltjarnarnesi. Sex íbúðir eru í húsinu auk starfsmannaaðstöðu.
Leitað er eftir stuðningsfulltrúum og eru karlmenn sérstaklega hvattir til að sækja um vegna samsetningar starfsmannahópsins sem fyrir er.
Óskað eftir stuðningsfulltrúum til starfa:
- starfshlutfall 80-100 %, allar tegundir vakta og önnur hver helgi
- starfshlutfall umsemjanlegt, aðra hvora helgi, allar tegundir vakta með möguleika á meiri vinnu
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar íbúa til sjálfshjálpar og stuðlar að þátttöku þeirra í samfélaginu
- Aðstoðar og styður íbúa við athafnir daglegs lífs og við heimilishald
- Setur sig inn í tjáningarform eða sérstakar aðstæður íbúa
- Fylgist með andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoðar þá við heilsufarslega þætti
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta
Auglýsing birt23. ágúst 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Kirkjubraut 20
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
Stuðningsfulltrúar
Arnarskóli
Frístundaleiðbeinandi með stuðning
Hrafninn frístundaklúbbur
Skemmtilegt starf á Íbúðarkjarna í Breiðholti
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Kona sem kann prjón eða hekl óskast á kvöld og helgarvaktir
NPA miðstöðin
Stuðningur við fötluð börn óskast í vetrarfrístund í Fjarðab
Fjarðabyggð
Frístundarleiðbeinendur við frístundaheimili á Reyðarfirði
Fjarðabyggð
Frístundarleiðbeinandi í félagsmiðstöðvar Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð
Stuðningsfulltrúi
Langholtsskóli
Flokkstjóri í heimaþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Stuðningsfulltrúi í fjölgreinadeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær
Starfsmaður í skammtímadvöl - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær