Kona sem kann prjón eða hekl óskast á kvöld og helgarvaktir
Kona sem kann að prjóna eða hekla óskast á kvöld og helgarvaktir
35 ára kona í Vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoðarkonu í hlutastarf á kvöld og helgarvaktir.
Æskilegt er að viðkomandi sé 35 ára eða eldri. Eldri konur sérstaklega velkomnar.
Konan er á einhverfurófi og felst starfið í aðstoða við daglegar athafnir og veita henni félagsskap.
Helstu áhugamál hennar eru prjónaskapur, ýmis önnur handavinna, föndur og söngur. Gott er að aðstoðarkonan hafi einnig áhuga á handavinnu.
Athugið að á heimilinu er lítill hundur sem er að byrja í hvolpaþjálfun.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.
Þær vaktir sem eru í boði
Á virkum dögum :
- Annar hver þriðjudagur 17:45-22:45
- Eða öll miðvikudagskvöld 18-23
- Eða öll fimmtudagskvöld 18-23
Og svo líka fjórðu hverja helgi :
- Föstudag og laugardag 18-23 og sunnudag 20:30-23:30
- Eða laugardag 12-16
- Eða sunnudag 12-16
- Einnig möguleika á ýmsum aukavöktum.
Hæfniskröfur:
- Þolinmæði.
- Frumkvæði.
- Góð samskiptahæfni.
- Að vera hvetjandi og skapandi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur en ekki skilyrði.
- Íslenskukunnátta er skilyrði.
- Bílpróf og aðgengi að bíl er skilyrði.
Starfið hentar mjög vel með skóla eða annarri vinnu.
- góð íslenskukunnátta