

Sölustjóri
Aventura er ný Íslensk ferðaskrifstofa sem hefur rekstur nú í janúarmánuði og mun bjóða Íslendingum spennandi ferðaframboð með því að nýta sér nýjustu tækni í þróun bókunarkerfa til að finna hægkvæmustu ferðir fyrir viðskiptavini sína.
Aventura leitar að starfsfólki til að vinna með reynsluboltum úr íslenskri ferðaþjónustu, til að byggja upp kraftmikið og leiðandi fyrirtæki, bjóða Íslendingum framúrskarandi þjónustu og bestu kjör sem hægt er að finna á íslenskum ferðamarkaði.
Við leitum að:
Sölustjóra á Íslandi
Leitum að kraftmiklum, drífandi einstakling sem er með brennandi áhuga á ferðaiðnaðinum, og getur búið til og leitt framleiðslu á fjölbreyttu ferðaframboði okkar fyrir íslenskan markað. Leitað er að einstakling sem er með reynslu af sölu og markaðssetningu, reynslu úr ferðaþjónustu, og hefur unnið við framleiðslu pakkaferða. Viðkomandi hefur afgerandi áhrif á það vöruframboð sem verður í boði á hverjum tíma. Góð tölvukunnátta er nauðsynleg, þekking á bókunarkerfum flugfélaga og nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu af markaðssetningu á netinu en viðkomandi mun vinna með teymi sérfræðinga á því sviði.
Sölufulltrúar
Við leitum að sölufulltrúum til að sinna þjónustu og sölu til viðskiptavina. Viðkomandi þarf að hafa framúrskarandi þjónustulund, gleði og ánægju af því að sinna viðskiptvinum, reynslu af sölu, þekkingu á helstu áfangastöðum Íslendinga, góða tölvuþekkingu, góða enskukunnáttu, bæði ritaða og talaða og við sjáum um að kenna þér allt hitt.
Áhugasamir vinsamlegast sendið starfsumsókn á netfang Aventura
Öllum umsóknum verður svarað











