

Ferðaráðgjafi á utanlandssviði (móttaka og þjónusta)
Bændaferðir, utanlandssvið Ferðaþjónustu bænda hf. leitar að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi í 100% starf á skrifstofu okkar í Síðumúla.
Við leitum að einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum við fólk, er lausnamiðaður og á auðvelt með að tileinka sér nýja tækni og upplýsingakerfi. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér þjónustu og ráðgjöf við viðskiptavini, bókanir, greiðslur og upplýsingagjöf vegna sölu pakkaferða út í heim.
Persónuleg þjónusta er stór hluti af starfsemi teymisins. Viðskiptavinir okkar leita gjarnan til okkar eftir ráðgjöf og aðstoð við allt frá vali og bókun ferðar til greiðslna og undirbúnings fyrir ferðalagið. Því skiptir miklu máli að viðkomandi hafi góða samskiptahæfileika, þolinmæði og ánægju af því að leiðbeina fólki og finna lausnir.
- Móttaka og þjónusta við viðskiptavini á skrifstofu.
- Símsvörun og samskipti í tölvupósti.
- Upplýsingagjöf og ráðgjöf um fjölbreytt úrval pakkaferða út í heim, m.a. rútuferðir, skemmtisiglingar og hreyfiferðir.
- Aðstoð við bókanir, greiðslur og önnur mál tengd ferðum viðskiptavina.
- Bókanir og þjónusta vegna skemmtisiglinga, m.a. Norwegian Cruise Line.
- Vinna í fjölbreyttum bókunar- og upplýsingakerfum.
- Almenn skrifstofustörf og náið samstarf við sölu- og bakvinnsluteymi.
Við leitum að einstaklingi sem
• býr yfir framúrskarandi þjónustulund og góðum samskiptahæfileikum
• er jákvæður, þolinmóður og lausnamiðaður
• er skipulagður og nákvæmur í vinnubrögðum
• er óhræddur við tækni og hefur áhuga á að tileinka sér ný kerfi og vinnubrögð
• á auðvelt með að læra á mismunandi bókunar- og upplýsingakerfi
• hefur góða tölvukunnáttu og er öruggur notandi Microsoft Office, sérstaklega Word og Excel
• hefur áhuga á ferðalögum og metnað til að öðlast góða þekkingu á fjölbreyttu ferðaframboði
• getur unnið sjálfstætt en nýtur þess jafnframt að vera hluti af góðu teymi
• hefur gott vald á íslensku og ensku.
Reynsla úr ferðaþjónustu, banka, tryggingum eða sambærilegum þjónustustörfum er kostur. Þekking á Amadeus flugbókunarkerfinu eða reynsla af bókunarkerfum í ferðaþjónustu er einnig mikill kostur, en ekki skilyrði.
Íslenska
Enska

