ELKO
ELKO
ELKO

Söluráðgjafi - ELKO Akureyri

Langar þig að vinna á skemmtilegum vinnustað með fjölbreytt verkefni og frábæru samstarfsfólki? ELKO Akureyri leitar að starfsfólki sem er jákvætt og með mikla þjónustulund. ELKO leggur áherslu á góða nýliðamóttöku og þjálfun. Starf söluráðgjafa felur meðal annars í sér að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu, verðmerkja og stilla upp vörum eftir verslunarstöðlum.
Vinnutími er almennt frá kl. 11-19 en getur breyst aðeins vegna starfsmannafræðslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni
  • Ráðgjöf á vörum og þjónustu
  • Áfylling og uppstilling
  • Verðmerkingar
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Hæfniskröfur
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
  • Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
  • Framúrskarandi færni í samskiptum og rík þjónustulund
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Reynsla af þjónustustörfum er kostur
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
Fríðindi í starfi
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur
  • Afsláttarkjör hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1
  • Aðgangur að velferðarpakka ELKO
  • Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
  • Öflugt félagslíf með reglulegum viðburðum
  • Starfsmannafélag með góðum vildarkjörum
  • Niðurgreiddur hádegismatur
 
Auglýsing birt20. janúar 2025
Umsóknarfrestur27. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tryggvabraut 18-20 18R, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar