Þjónusta í apóteki - Austurver
Apótekarinn leitar að þjónustulunduðum starfsmanni til þess að sinna þjónustu og ráðgjöf við viðskiptavini fyrirtækisins í Apótekaranum Austurveri.
Laust er til umóknar starf með vinnutíma kl 10-18 alla virka daga. Um framtíðarstarf er að ræða.
Starfssvið:
-Ráðgjöf til viðskiptavina
-Almenn þjónusta og sala
Hæfniskröfur:
-Reynsla af starfi í apóteki er kostur
-Lyfjatæknimenntun mikill kostur
-Stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð
-Mikil þjónustulund og jákvæðni
-Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði
-Lágmarksaldur er 20 ára
Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Apótekarinn er framsækið verslunar- og þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Heilsa og heilbrigði er sérsvið fyrirtækisins og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna með því að bjóða lyf og aðrar heilsutengdar vörur.
Í Apótekaranum færðu lægra verð, persónulega, örugga og faglega þjónustu.