
Gluggasmiðjan
Gluggasmiðjan er eitt af leiðandi fyrirtækjum á sviði byggingavara eins og glugga, hurða og einangrunarglers í miklu úrvali.
Einnig býður fyrirtækið allar gerðir öryggisglerja, svalahandrið í mörgum útfærslum, svalalokanir, spegla með og án ljósa, loftristar í glugga og þakgluggakerfi.

Sölumaður/Viðskiptastjóri
Gluggasmiðjan leitar að drífandi, kraftmiklum og jákvæðum sölumanni/viðskiptastjóra í framtíðarstarf.
Um er að ræða sölu og tilboðsgerð bæði til verktaka og almennings vegna fjölbreyttra verkefna.
Hjá Gluggasmiðjunni starfar samheldinn hópur reyndra starfsmanna og er því lögð er rík áhersla á jákvæð samskipti ásamt því að viðkomandi falli vel að góðri liðsheild fyrirtækisins. Áhersla er á að fá til liðs við okkur aðila með jákvætt hugarfar og ríka þjónustulund.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla eða menntun sem nýtist í starfi – iðnmenntun, iðnfræði, tæknifræði eða reynsla úr byggingariðnaði er kostur
• Reynsla af sölustörfum og brennandi áhugi er mikilvægt
• Rík þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Metnaður til að takast á við krefjandi verkefni
• Skipulagshæfni, jákvæðni og heiðarleiki í starfi
• Gott vald á íslensku og ensku
• Góð almenn tölvukunnátta
• Reynsla af bókhaldskerfum (DK sem dæmi) er kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
• Þjónusta og sala til einstaklinga og verktaka
• Tilboðsgerð og eftirfylgni með sölu
• Þátttaka í stöðugum umbótum vinnuferla, markaðsgreiningu og stefnumótun
Auglýsing birt18. janúar 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Steinhella 17A, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
HeiðarleikiJákvæðniMetnaðurSamviskusemiSölumennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi
Húsgagnahöllin

Útilíf - Sölustarf í verslun
Útilíf ehf.

Fullnægjandi hlutastarf í nýrri verslun Blush
Blush

Hönnun og ráðgjöf á skiltum og merkingum
Signa ehf

Viðskiptastjóri hjá Sena Events & PCO
Sena

Tæknimaður - uppsetning, gangsetning og þjónusta
Thor Ice Chilling Solution

Viðskiptastjóri í hjúkrunarvörum og heilbrigðislausnum
STOÐ

Rekstarstjóri Húsasmiðjunnar og Blómavals í Skútuvogi
Húsasmiðjan

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Account Manager
Teitur

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin