![Nova](https://alfredprod.imgix.net/logo/6eafffb7-0fb2-46ec-b5f6-19f7fcaf3bd1.png?w=256&q=75&auto=format)
Nova
Þann 1. desember 2007 opnaði Nova dyrnar að Stærsta skemmtistað í heimi - internetinu!
Síðan þá höfum við lagt ofur áherslu á að hlaupa hratt og vera fyrst með nýjungarnar. Við vorum fyrst allra íslenskra símafyrirtækja til að bjóða upp á 4G, 4.5G og nú síðast 5G.
Árið 2016 bætti Nova ljósleiðaraþjónustu í vöruframboð sitt sem byggir á kerfi Ljósleiðarans ehf. Ljósleiðari hjá Nova styður 1000 Mb/s hraða, sem er mesti hraði í heimatengingum á Íslandi. Aðeins það besta fyrir okkar fólk!
Nova hefur átt ánægðustu viðskiptavinina í farsímaþjónustu samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni sl. 15 ár sem er viðurkenning sem við erum einstaklega þakklát fyrir! Slíkum árangri væri ekki hægt að ná nema með besta liðinu en við leggjum okkur öll fram við það alla daga að skapa besta vinnustaðinn. Nova er skemmtilegur og sveigjanlegur vinnustaður, þar sem mikið er lagt upp úr sjálfstæðum vinnubrögðum, frumkvæði og kappsemi. Þó við segjum sjálf frá, þá er starfsfólk Nova sérlega skemmtilegt, liðsheildin góð og starfsandinn svífur í hæstu hæðum.
Við erum sérstaklega stolt, auðmjúk og þakklát fyrir það að hafa fengið nafnbótina Fyrirtæki ársins 2023, fjórða árið í röð, hlotið Jafnlaunavottun 2020-2023, fyrir að vera Markaðsfyrirtæki ársins 2020 á vegum ÍMARK og að eiga ánægðustu viðskiptavinina á farsímamarkaði 15. árið í röð.
Viltu dansa með okkur?
![Nova](https://alfredprod.imgix.net/cover/is-e4b5e372-ce71-4c74-b1d6-c6e95ca9d5de.png?w=1200&q=75&auto=format)
Sölu- og þjónusturáðgjafar
Við leitum að framúrskarandi skemmtilegum liðsfélögum til að stíga dansinn með okkur í þjónustuveri og verslunum.
Starfið er draumur í dós fyrir þau sem spila til að vinna, elska að umgangast glás af lífsglöðu fólki og vilja alltaf hafa nóg fyrir stafni. Söluhæfileikar, metnaður og bullandi þjónustulund eru lykilþættir – og brennandi áhugi á snjalltækjum og öllu hinu fína dótinu sem við seljum er auðvitað bráðnauðsynlegur.
Afhverju að vinna hjá Nova? Allt um það hér!
Auglýsing stofnuð1. júlí 2024
Umsóknarfrestur10. júlí 2024
Tungumálahæfni
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Enska](https://alfredflags.imgix.net/en.png?w=60&h=60)
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSölumennskaÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)
![Securitas](https://alfredprod.imgix.net/logo/6ba81df6-1b5c-4ff5-8f7b-5df872ccb5ce.png?w=256&q=75&auto=format)
Þjónustufulltrúi á Stjórnstöð
Securitas
![HD](https://alfredprod.imgix.net/logo/b4a84981-7058-4c20-9f5d-cb0575904986.png?w=256&q=75&auto=format)
Sölumaður vél- og tæknibúnaðar
HD
![Fagkaup ehf](https://alfredprod.imgix.net/logo/71ed56f3-cf37-41a0-8f53-743d8ecbbb7e.png?w=256&q=75&auto=format)
Söluráðgjafi á byggingarsviði
Fagkaup ehf
![Vinnupallar ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/a02564c8-b0da-4ecb-aff6-26ed1eb57cd0.png?w=256&q=75&auto=format)
Sölumaður óskast til Vinnupalla
Vinnupallar ehf.
![Sporthúsið Kópavogi](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-0bbc76cd-7014-44cd-bd22-919b7036bb41.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Starfskraftur óskast í móttöku
Sporthúsið Kópavogi
![Símstöðin ehf](https://alfredprod.imgix.net/logo/3e5a088e-3672-4cb9-8c7a-c3c81c8db174.png?w=256&q=75&auto=format)
Hlutastarf - fjölbreytt verkefni
Símstöðin ehf
![Lyfja](https://alfredprod.imgix.net/logo/e8582153-74fc-4f0b-851d-3a440b4a398a.png?w=256&q=75&auto=format)
Lyfja Nýbýlavegi - Sala og þjónusta, framtíðarstarf
Lyfja
![Lyfja](https://alfredprod.imgix.net/logo/e8582153-74fc-4f0b-851d-3a440b4a398a.png?w=256&q=75&auto=format)
Lyfja Blönduósi, Sala og þjónusta, framtíðarstarf
Lyfja
![Dropp](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-1aff3359-8a7f-4352-805e-6c9912764c60.png?w=256&q=75&auto=format)
Þjónusta og tækniaðstoð
Dropp
![Gjaldskil Debitum](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-5815ddb7-d4ae-4950-bc62-ac7104941ad5.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Móttökuritari / Þjónustuver
Gjaldskil Debitum
![Lyfja](https://alfredprod.imgix.net/logo/e8582153-74fc-4f0b-851d-3a440b4a398a.png?w=256&q=75&auto=format)
Lyfja Granda - Sala og þjónusta
Lyfja
![Kíró ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/cc5ba428-e887-4052-abca-4d233b2fd46b.png?w=256&q=75&auto=format)
Móttökuritari
Kíró ehf.