
Snillingur í innleiðingu og þjónustu
SalesCloud leitar eftir að ráða jákvæðan og lausnamiðaðan einstakling sem getur unnið sjálfstætt til að hafa umsjón með og sjá um innleiðingar viðskiptavina frá A til Ö. Viðkomandi aðili þarf að vera sveigjanlegur og geta unnið undir álagi þegar þarf að leysa mál viðskiptavina.
SalesCloud er ört vaxandi íslenskt fyrirtæki sem er að hefja vöxt erlendis. Fyrirtækið býður upp á lausnir sem auðvelda litlum og meðalstórum fyrirtækjum að auka sölu í verslunum og á netinu, með öflugu sölukerfi í skýinu, sem hefur innbyggðar lausnir á borð við kassakerfi, vefsölu í gegnum heimasíður, bókanir og sjálfsafgreiðslu - svo eitthvað sé nefnt. SalesCloud veitir viðskiptavinum sínum neyðarþjónustu utan skrifstofutíma.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.











