Þjórsárskóli
Þjórsárskóli

Skólastjóri Þjórsárskóla

Skeiða- og Gnúpverjahreppur óskar eftir að ráða skólastjóra Þjórsárskóla, grunnskóla Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Í Þjórsárskóla verður frá og með skólaárinu 2025 kennt í 1.- 9. bekk og frá og með skólaárinu 2026 verður kennt í 1.- 10. bekk. Skólastjóri Þjórsárskóla ber ábyrgð á starfsemi skólans, rekstri og mannauðsmálum, samstarfi skóla og samfélags og gegnir lykilhlutverki í áframhaldandi innleiðingu skólastefnu og þar með frekari mótun skólastarfsins til framtíðar.

Í Þjórsárskóla er lögð rík áhersla á framsækið starf, fjölbreytta kennsluhætti og umhverfis- og sjálfbærnimennt þar sem stefnt er að lifandi og einstaklingsmiðuðu námi, samstarfi og nýsköpun.

Haustið 2023 var samþykkt ný skólastefna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og er meginmarkmið hennar að í sveitarfélaginu sé framúrskarandi skólastarf og lifandi og sveigjanlegt námsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Fagleg forysta skólans.

·       Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans.

·       Ábyrgð á framþróun í skólastarfi í samræmi við samþykkta skólastefnu.

·       Leiða samstarf starfsfólks, nemenda, heimila og skólasamfélagsins í heild.

·       Forysta og samvinna á samþættingu þjónustu í þágu farsældar.

·       Samstarf við skólanefnd, sveitarstjóra og sveitarstjórn.

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla á grunnskólastigi.

·       Framúrskarandi hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

·       Leiðtogafærni, metnaður og styrkur til ákvarðana.

·       Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg.

·       Farsæl reynsla af stjórnun og skólaþróun er æskileg.

·       Skipulagshæfni og góð yfirsýn.

·       Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Auglýsing birt21. mars 2025
Umsóknarfrestur14. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólabraut 8, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Starfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar