

Skóla- og frístundaliði - Víðistaðaskóli
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundaliðum til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í 50-100% starfshlutfalli.
Í Víðistaðaskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, nemendalýðræði, líðan nemenda og að þeir nái góðum árangri í leik og starfi. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1.–4. bekk farið í frístundaheimilið Hraunkot. Þar er boðið er upp á fjölbreytt tómstundastarf til kl.16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.
Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing – Vinátta.
Víðistaðaskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10. bekk. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
- Tekur á móti nemendum á morgnanna
- Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
- Sinnir frímínútnagæslu, fylgd og gæslu í daglegu skólastarfi
- Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og salernum snyrtilegum yfir daginn
- Starfar með nemendum með sértæka vanda
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsramma (coe.int)
- Almenn tölvukunnátta
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar veita Arnór Heiðarsson, skólastjóri, í síma 595-5800, [email protected]
og Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 2026.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska























