Garðabær
Garðabær
Garðabær

Flataskóli - stuðningsfulltrúi

Stuðningsfulltrúi óskast til starfa í Flataskóla Um er að ræða 70% starf á starfstíma skóla. Möguleiki er á 100% stöðu ef viðkomandi vill einnig starfa í Frístundaheimili skólans eftir að starfstíma skóla lýkur.

Í Flataskóla starfa um 300 nemendur í 1.-7. bekk og um 50 starfsmenn. Þar ríkir faglegur metnaður og námsmenning leiðsagnarnáms er þar leiðandi. Skólinn er einnig Réttindaskóli Unicef og rík áhersla er lögð á jákvæð og uppbyggileg samskipti milli allra aðila skólasamfélagsins.

Gott andrúmsloft, umhyggja og góður námsárangur er sameiginlegur metnaður starfsfólks. Í skólanum er gott samstarf, þar ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi.

Sýn Flataskóla er að í skólanum sé ýtt undir seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks. Námið í skólanum er áhugavert, gerðar eru skýrar væntingar til nemenda og öllum gert kleift að vaxa.

Áhersla á S-in fimm seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd á að vera sýnileg í öllu okkar starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi 
  • Vinna eftir áætlun sem kennari hefur útbúið 
  • Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð 
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu 
  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og gæsla í íþróttaklefa
  • Fylgjast með samskiptum nemenda og grípa inní þar sem þörf er á
  • Vinna með kennurum í að skapa jákvætt andrúmsloft í íþróttum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur 
  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum er æskileg 
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar 
  • Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi 
  • Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd 
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 skv. evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu

Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Auglýsing birt5. ágúst 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar