Garðabær
Garðabær
Garðabær

Frístundaheimilið Krakkakot (Flataskóla)- leiðbeinandi

Flataskóli auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf í frístundaheimlið Krakkakot. Opnunartími frístundaheimilisins er frá kl. 14:00 –16:30. Í boði eru tímavinnustörf og hlutastörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi.

Í Krakkakoti eru um 80 börn í 1.- 4. bekk sem eru þar við leik og fjölbreytt störf að loknum skóladegi. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu tómstundastarfi í teymisvinnu samkvæmt skólastefnu Flataskóla.

Gott andrúmsloft, umhyggja og góður námsárangur er sameiginlegur metnaður starfsfólks. Í skólanum er gott samstarf, þar ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi.

Sýn Flataskóla er að í skólanum sé ýtt undir seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks. Námið í skólanum er áhugavert, gerðar eru skýrar væntingar til nemenda og öllum gert kleift að vaxa.

Áhersla á S-in fimm seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd á að vera sýnileg í öllu okkar starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu og faglegu frístundastarfi 
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum í samræmi við gildi Flataskóla 
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað starfsfólk skólans og aðstandendur 
  • Leitast við að virkja alla nemendur óháð getu og þroska í fjölbreytt verkefni og tekur fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð 
  • Sinni frágangi á starfssvæði frístundar í lok dags 
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur viðkomandi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur 
  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum er æskileg 
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar 
  • Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi 
  • Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd 
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 skv. evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu

Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Auglýsing birt5. ágúst 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar