Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar

Leitast er eftir drífandi, hugmyndaríkum og ábyrgum einstaklingum í fjölbreytt og skemmtilegt starf með með börnum og ungmennum í Fjarðabyggð. Ef þú ert hugmyndarík/ur, skapandi og hefur áhuga á starfi með börnum og ungmennum, Þá erum við að leita að þér!

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð ber ábyrgð ásamt forstöðumanni á framkvæmd félagsmiðstöðvarstarfs fyrir ungmenni á aldrinum 10 - 16 ára. Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður í frístundastarfi þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku, ásamt styrkingu sjálfsmyndar. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni sem höfðar til barna og unglinga með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggar aðstæður þannig að þeim líði vel í félagsmiðstöðinni.

Um er að ræða hlutastarf sem felur í sér uppbyggilegt félagsmiðstöðvastarf fyrir 10-16 ára börn og ungmenni. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun september.

Lausar stöður eru í eftirfarandi félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar:

  • Zveskjan (Reyðarfjörður)
  • Stöðin (Stöðvarfjörður)
  • Hellirinn (Fáskrúðsfjörður)
  • Knellan (Eskifjörður)
  • Atom (Neskaupstaður)
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfmaður tekur þátt í að skipuleggja og framkvæma starfssemi félagsmiðstöðvarinnar.
  • Stuðla að virðingu, jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum við börn og unglinga.
  • Góð samvinna og samráð við börn, unglinga og samstarfsfólk.
  • Sinnir hefðbundnum opnunum félagsmiðstöðva og verkefnum sem fylgja þeim s.s. undirbúningi og frágangi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Æskilegt að frístundaleiðbeinandi hafi menntun sem nýtist í starfi. 
  • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum
  • Umsækjendur þurfa að búa yfir ákveðinni festu, hafa góða skipulags- og stjórnunarhæfileika, vera liprir í mannlegum samskiptum og hafa hreina sakaskrá.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót, góð samstarfshæfni og geta til að miðla upplýsingum.
  • Heiðarleiki og stundvísi, auk þess sem starfsmaður þarf að vera laus við fordóma.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum.
  • Geta til að tekið virkan þátt í hugmyndavinnu og breytingum með jákvæðni og samvinnu.
  • Gott vald á íslenskri tungu
Auglýsing birt5. ágúst 2026
Umsóknarfrestur19. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar