Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skarðshlíðarskóli óskar eftir að ráða kennara í fullt starf í ÍSAT-kennslu

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í íslensku sem öðru máli
  • Annast stöðumat á nýjum nemendum í íslensku
  • Taka þátt í móttökuviðtölum
  • Vinna eftir áherslum aðalnámskrá grunnskóla í íslensku sem annað mál, menningarfærni og fjöltyngi í skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi og vera opinn fyrir fjölbreyttum
  • kennsluháttum.
  • Haldgóð þekking og reynsla af kennslu í íslensku sem öðru máli
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
  • Lipurð og jákvæðni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
  • Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á G-suite og Mentor
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871, [email protected] og Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861, [email protected]

Umsóknarfrestur 13. ágúst 2026

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt30. júlí 2026
Umsóknarfrestur13. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar