Frístundamiðstöðin Tjörnin
Frístundamiðstöðin Tjörnin
Frístundamiðstöðin Tjörnin

Skemmtileg sumarstörf í boði á frístundaheimilum Tjarnarinna

Frístundamiðstöðin Tjörnin leitar að starfsfólki í sumarstarf frístundaheimilanna í sumar, en við getum bætt við okkur bæði fólki sem vill vinna sem almennir frístundaleiðbeinendur og fólki sem hefur áhuga á að sinna sértækum stuðningi við börn sem þess þurfa svo þau geti tekið þátt í almennu starfi frístundaheimilisins. Sumarfrístund er opin virka daga frá kl. 8.30 – 16.30 á starfstíma frístundaheimilanna í sumar, en hann er sem hér segir: Sumarfrístund hefst 10. júní og er boðið upp á þjónustu til 4. júlí, en frá 7. júlí-1. ágúst er lokað vegna sumarleyfa. Sumarfrístund opnar síðan aftur frá 5.-20. ágúst. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf eigi síðar en 5. júní og geta starfað bæði fyrir og eftir sumarlokun. Umsækjendur þurfa að hafa náð að lágmarki 18 ára aldri.Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Mikil útivera, sundferðir, vettgvangsferðir, leikir og almenn gleði yfir sumartímann.

Hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á að vinna með börnum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Færni í samskiptum.
  • Vilji til að leika sér og vera góður og traustur samstarfsfélagi.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Lágmark 18 ára aldur.

Í boði eru 100% störf frá 5. júní til 20. ágúst. Sumarfrístund lokar frá 7. júlí – 6. ágúst og er því frí í fjórar vikur yfir sumarið. Eingöngu þeir umsækjendur sem geta unnið bæði tímabilin verða boðaðir í viðtal.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfiðLaun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.Nánari upplýsingar um starfið veitirSteinunn Th. Gretarsdóttir, deildarstjóri barnastarfs Tjarnarinnar en senda má póst á [email protected] til að fá nánari upplýsingar um starfið.

Auglýsing birt24. mars 2025
Umsóknarfrestur6. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Frostaskjól 2, 107 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar