

Skagi leitar að öflugum lögfræðingi í regluvörslu
Skagi leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum lögfræðingi til starfa í regluvörslu samstæðu félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, nákvæmni og góð samskipti. Starfið felur í sér margvísleg verkefni tengd regluvörslu, stjórnarháttum og ráðgjöf við innleiðingu á lögum og reglum.
- Vinna við greiningar og mat á hlítingaráhættu.
-
Ráðgjöf við innleiðingu á lögum og reglum.
-
Verkefni tengd eftirliti með viðskiptum með fjármálagerninga.
-
Verkefni tengd eftirliti með aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
-
Verkefni tengd eftirliti með fylgni við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
-
Ráðgjöf til starfsfólks við túlkun laga og reglna.
-
Fræðsla til starfsfólks og stjórnar.
-
Ýmis tilfallandi verkefni tengd stjórnarháttum og starfi stjórna og undirnefnda innan samstæðunnar.
-
Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
-
Góð greiningar- og ályktunarhæfni.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Hæfni og reynsla í að miðla upplýsingum á aðgengilegan hátt í ræðu og riti á íslensku og ensku.
-
Geta til að vinna sjálfstætt og taka ákvarðanir undir álagi.
-
Reynsla á sviði regluvörslu hjá fjármálafyrirtæki er kostur
- Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
- Frábært mötuneyti
- Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
- Nýsköpunarumhverfi því við elskum hugrekki
- Fyrirtæki sem hugsar til framtíðar með því að leggja áherslu á sjálfbærni
- Tækifæri til þess að vaxa og dafna bæði í lífi og starfi










