Félag iðn- og tæknigreina
Félag iðn- og tæknigreina

Ráðgjafi á sviði kjaramála

Félag iðn- og tæknigreina (FIT) leitar að færum ráðgjafa til að sinna kjara- og réttindamálum á skrifstofu félagsins. Starfið er fjölbreytt og reynir á frumkvæði og sjálfstæði.

Ráðgjafi í kjaramálum er í framlínu og hefur það hlutverk að sinna þjónustu við félagsfólk FIT vegna kjara- og réttindamála.

Ráðgjafi starfar í öflugu teymi sem deilir á milli sín verkefnum eða eftir atvikum leysir þau í sameiningu. Hjá FIT starfar samhentur hópur starfsfólks sem er tilbúið til að aðstoða og leysa verkefni þvert á hópa.

Frekari upplýsingar veitir Karl Óttar í síma 5356007 eða netfangið [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

Úrlausn kjara- og eða réttindamála fyrir félagsmenn.

Ráðgjöf og afgreiðsla erinda félagsfólks vegna kjara- og réttindatengdra mála. 

Ráðgjöf og upplýsingar til félagsfólks.

Símsvörun, svörun fyrirspurna og móttaka félagsfólks.

Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.

Þekking og reynsla af sambærilegum störfum æskileg.

Þekking á kjara- og réttindamálum æskileg.

Góð tölvukunnátta og góð þekking á Ecxel. 

Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.

Þjónustulund, jákvætt viðhorf og hæfni til að vinna í teymi.

Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

Auglýsing birt29. maí 2025
Umsóknarfrestur9. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Stórhöfði 31, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar