
Félag iðn- og tæknigreina
Félag iðn- og tæknigreina – skammstafað FIT – er stærsta einstaka stéttarfélag iðnaðarfólks á Íslandi. Félagar í FIT eru í dag um sjö þúsund talsins en félagið var stofnað árið 2003, þegar hátt í tuttugu félög iðnaðarfólks – sem mörg eiga allt að hundrað ára sögu – runnu saman í eitt.
Hagsmunagæsla fyrir félagsfólk er aðalverkefni félagsins en markmið þess er að auka fjárhagslegt öryggi og lífsgæði. Á grundvelli mánaðarlegra gjalda frá félagsfólki starfrækir félagið fimm sjóði: félagssjóð, sjúkrasjóð, menntasjóð, orlofssjóð og vinnudeilusjóð. Félagið kappkostar að veita bæði faglega og hraða þjónustu. Í því skyni rekur félagið fimm skrifstofur; á Stórhöfða í Reykjavík, í Reykjanesbæ, á Selfossi, á Akranesi og í Vestmannaeyjum.
FIT hefur verið í fararbroddi stéttarfélaga þegar kemur að innleiðingu tæknilegra nýjunga og er þannig bæði framsækið og öflugt stéttarfélag sem sækir styrk sinn hvoru tveggja í fjölbreytni og stærð. Hjá félaginu er sérstök áhersla á að höfða til ungs fólks á vinnumarkaði.
FIT er aðili að Samiðn, sambandi iðnfélaga og Alþýðusambandi Íslands en félagið á einnig aðild að norrænum og alþjóðlegum samtökum.
Starfsmaður í mótttöku, símsvörun o.fl.
Félag iðn- og tæknigreina (FIT) auglýsir eftir að ráða einstakling í 50% starf á skrifstofu félagsins að Heiðarvegi 7 Vestmannaeyjum. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf.
Vinnutíminn er 10-12 og 13-15 virka daga.
Nánari upplýsingar veitir Karl Óttar í síma 5356007 eða í tölvupósti [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka félagsamnna.
- Símsvörun, upplýsingagjöf og túlkun kjarasamninga.
- Útreikningur og ýmis verkefni sem tengjast sjóðum félagsins.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking á kjarasamningum og reynsla af skrifstofustörfum kostur.
- Þjónustulund, jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð tungumálakunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Auglýsing birt29. maí 2025
Umsóknarfrestur10. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Heiðarvegur 7 Vestmannaeyjum
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Vefverslun / Markaðsmál
Rafkaup

Bókari - Klíníkin Ármúla
Klíníkin Ármúla ehf.

Bókhaldsfulltrúi á Akureyri
Aðalskrifstofa - Keahótel ehf.

Fjölbreytt og gefandi starf í móttöku Krabbameinsfélagsins
Krabbameinsfélag Íslands

Starfsmaður í reikningagerð og innheimtu
Steypustöðin

Móttökufulltrúi á skrifstofu Byggiðnar- Félags byggingamanna
Byggiðn- Félag byggingamanna

Félagsráðgjafi eða sérfræðingur í barna- og fjölskylduvernd
Fjölskyldusvið

Reyndur bókari
VHE

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður, hlutastarf
Landspítali

Móttökuritari/skrifstofufulltrúi
Héraðsdómur Reykjaness

Sérfræðingur á sviði fagmála og hagsmunagæslu
Félag Sjúkraþjálfara

Starf í bókhaldi og þjónustu
Aðalbókarinn ehf