

Fjölbreytt og gefandi starf í móttöku Krabbameinsfélagsins
Krabbameinsfélagið óskar eftir að ráða hlýjan og nærgætinn einstakling með góða samskiptahæfni til starfa í móttöku hjá ráðgjöfum Krabbameinsfélagsins. Starfið felst í samskiptum við fólk sem leitar til félagsins eftir stuðningi og ráðgjöf, í síma, með tölvupósti og í móttöku í Skógarhlíð 8, ásamt fleiri verkefnum.
Starfið er fjölbreytt og gefandi, í góðum hópi.
· Tímabókanir og móttaka
· Símsvörun og tölvupóstsamskipti
· Umsjón með aðstöðu ráðgjafa
· Undirbúningur fyrir námskeið og fundi
· Eftirlit með íbúðum Krabbameinsfélagsins og samskipti við gesti
· Dreifing upplýsinga og annars efnis frá félaginu
· Samantekt gagna
· Þátttaka í teymisvinnu
· Umsjón með pöntunum og innkaupum
· Önnur tilfallandi verkefni
· Hlýtt og gott viðmót
· Jákvæðni, lausnamiðuð hugsun og góð færni í mannlegum samskiptum
· Góð tölvukunnátta
· Skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
· Stúdentspróf
· Önnur menntun sem nýtist í starfi













