

Hjúkrunarfræðingur á geðlækningastofu (80-100%)
Per mentis óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing með reynslu af geðlækningum fullorðinna. Um er að ræða dagvinnustarf við greiningu og meðferð geðsjúkdóma. Unnið er í nánu teymi með geðlæknum, sálfræðingum, öðrum hjúkrunarfræðingum og fleiri starfsstéttum. Helstu áhersluatriði innan geðlækninga eru taugaþroskaraskanir (t.d. ADHD) og lyndisraskanir (t.d. geðhvarfasýki, bipolar), en stofan tekur að sér allar almennar geðlækningar.
Starfshlutfall er 80-100%
Hópurinn telur í dag tvo geðlækna (þar af er annar framkvæmdastjóri), þrjá sálfræðinga, tvo hjúkrunarfræðinga, skrifstofustjóra, fjármálafulltrúa og lausráðna verktaka í hugbúnaðarþróun, grafískri hönnun o.s.frv. Við óskum nú eftir að ráða þriðja hjúkrunarfræðinginn.
- Góð laun, afkastatengt bónuskerfi, fríðindi á borð við ókeypis mat í hádeginu
- Dagvinna með sveigjanlegum vinnutíma og möguleika á fjarvinnu að hluta
- Sjálfstæð sjúklingamóttaka með stuðningi teymis
- Góð vinnuaðstaða
- Við höfum lagt mikið upp úr því að sjálfvirknivæða ferla þar sem það á við, draga úr handtökum sem tölva getur gert fyrir okkur og höfum virka hugbúnaðarþróun
Sjúklingamóttaka fullorðinna með geðvanda. Greining og meðferð.
- Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
- Gott viðmót, lipurleiki og geta til þess að vinna sjálfstætt og í teymi
- Reynsla af starfi með skjólstæðingum með geðvanda
- Góð laun, afkastatengt bónuskerfi
- Ókeypis matur í hádeginu
- Sveigjanlegur vinnutími
- Möguleiki á fjarvinnu að hluta













