

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Garðabæ
Heilsugæslan Garðabæ leitar að hjúkrunarfræðingi í fjölbreytt og skemmtileg störf hjúkrunar. Um er að ræða tímabundið starf í eitt ár og er starfshlutfall 60-100%. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi. Megin starfssvið er skólaheilsugæsla ásamt hjúkrunarmóttöku en til greina kemur starfssvið vegna lífsstílsmóttöku og heilsuvernd aldraðra hafi viðkomandi reynslu á því sviði.
Á Heilsugæslunni Garðabæ starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar sinna krefjandi og áhugaverðum verkefnum, margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Garðabæ leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Megin starfssvið er hjúkrunarmóttaka ásamt skólaheilsugæslu. Einnig kemur til greina að sinna heilsueflandi móttöku og heilsuvernd eldra fólks.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð ásamt lyfjagjöfum.
Hjúkrunarfræðingur metur heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning, fræðslu og eftirfylgni ásamt leiðsögn um heilbrigðikerfið og þjónustuúrræði.
Hjúkrunarfræðingur leitast við að styðja eldra fólk til að efla og viðhalda andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði. Þjónustan felst í að greina áhættuþætti og veita fræðslu sem snerta heilsu og líðan. Hjúkrunarfræðingur veitir jafnframt ráðgjöf, leiðsögn og upplýsingar um þau þjónustuúrræði sem eru í boði.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af fjölskylduhjúkrun æskileg
- Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
- Færni í fyrirlestrahaldi
- Þekking á réttindum barna
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
- Þekking á forvarnar- og heilsueflingarstarfi kostur
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Góð tölvukunnátta


















