
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu.
Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu.
Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín.
Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.

Sjúkraþjálfari - Heilsugæslan Efra Breiðholti
Heilsugæslan Efra Breiðholti auglýsir eftir sjúkraþjálfara til að sinna hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku. Um er að ræða 50-80% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Heilsugæslan Efra Breiðholti leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, góða samvinnu fagstétta og sveiganlegan vinnutíma.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem veitt er fyrstu línu þjónusta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tekur á móti skjólstæðingum sem hafa fengið uppáskrifaðan hreyfiseðil frá heilbrigðisstarfsmanni og framkvæmir viðeigandi mælingar, setur upp hreyfiáætlun í samráði við skjólstæðing og fylgir henni eftir
- Metur, greinir og veitir ráðgjöf varðandi stoðkerfisvanda skjólstæðinga
- Skráir og fylgir eftir meðferð skjólstæðinga
- Nýtir faglega þekkingu til að forgangsraða og leysa viðfangsefni
- Veitir fræðslu til starfsfólks heilsugæslunnar
- Leiðbeinir samstarfsfólki
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggilt sjúkraþjálfarapróf
- Þriggja ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari
- Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Góð íslensku og enskukunnátta
Auglýsing birt20. maí 2025
Umsóknarfrestur4. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Hraunberg 6, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Móttökuritari - sumarstarf í Heimahjúkrun
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Hvammi
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efstaleiti
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Málastjóri - Geðheilsuteymi HH suður
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Spennandi starf fyrir iðjuþjálfa - Geðheilsuteymi HH austur
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins