

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Hvammi
Við hjá heilsugæslunni Hvammi leitum að jákvæðum og metnaðarfullum sálfræðingi til að koma til liðs við okkur. Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvang, fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu og vill stuðla að heilbrigði líðan einstaklinga. Lögð er áhersla á að sálfræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu.
Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni sálfræðing í ábyrgðarminna starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.
Heilsugæslunni er ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
- Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri
- Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
- Einstaklings- og hópmeðferð
- Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
- Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
- 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
- Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna
- Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum
- Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Góð enskukunnátta æskileg

















