Ráðgjafar- og greiningarstöð
Ráðgjafar- og greiningarstöð

Sjúkraþjálfari

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sjúkraþjálfara. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með raskanir í taugaþroska
  • Mat og ráðgjöf varðandi hjálpartæki, umsóknir til Sjúkratrygginga og eftirfylgd
  • Mat á skyn- og hreyfifærni með viðurkenndum próf- og matstækjum og klínískum athugunum, úrvinnsla og túlkun niðurstaðna ásamt mati á íhlutun eða úrræðum
  • Skráning og skýrslugerð
  • Sjúkraþjálfun í einstaka tilfellum t.d. ungra barna í smábarnateymi
  • Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar
  • Þátttaka í fræðslu- og rannsóknarstarfi innan og utan stofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
  • Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Auglýsing birt22. maí 2025
Umsóknarfrestur2. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dalshraun 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar