Sjúkraþjálfari
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa í 80% starf. Um er að ræða framtíðarstarf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir samkomulagi.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem eru lausnamiðaðir og geta unnið sjálfstætt.
Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf. Sjúkraþjálfari starfar í nánu samstarfi við fagfólk á deildum stofnunarinnar. Starfssvið eru m.a. hjúkrunardeild, sjúkradeild, hjartaendurhæfing og hreyfistjórnun. Sjúkraþjálfarar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn.
- Sjúkraþjálfari með íslenskt starfsleyfi
- Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti
- Faglegur metnaður og vandvirkni
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Hlýtt og jákvætt viðmót
- Hjálpartækjakunnátta
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Starfsreynsla er kostur