
Coripharma ehf.
Coripharma er nýsköpunarfyrirtæki í Hafnarfirði sem þróar og framleiðir samheitalyf fyrir önnur lyfjafyrirtæki á erlendum mörkuðum.
Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það vaxið hratt og undirbýr nú útflutning á tugum lyfja. Í dag starfa um 220 manns hjá Coripharma. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Sérfræðingur í þróun lyfjaforma
Þróunardeild lyfjaforma er hluti af Þróunarsviði Coripharma ehf. og sérhæfir sig í þróun lyfjasamsetninga fyrir skráningarferli og framleiðslu til markaðs.
Við leitum að sérfræðingi til að styrkja teymið okkar. Hlutverk sérfræðings felst í hönnun lyfjasamsetninga sem uppfylla ströng gæðaviðmið og hafa ákjósanlega framleiðslueiginleika. Auk þess felur starfið í sér fjölbreytt verkefni og skýrsluskrif.
Við óskum eftir einstaklingi sem hefur áhuga á þróunarstarfi, vinnur markvisst að lausnum og getur skilað árangursríkum niðurstöðum innan tilgreindra tímamarka.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tilraunavinna við þróun lyfjaforma á rannsóknastofu Þróunardeildar lyfjaforma
- Samantekt og túlkun á margvíslegum niðurstöðum tengdum þróun lyfjaforma
- Þátttaka í uppskölun samsetninga á framleiðslusvæði Coripharma, GMP umhverfi
- Skýrslugerð tengd rannsóknarvinnu og skráningarferlum lyfja
- Þátttaka í verkefnafundum innan Þróunarsviðs
Menntunar- og hæfniskröfur
- M.Sc. í lyfjafræði eða B.Sc. í raunvísindum (framhaldsmenntun kostur)
- Reynslu af lyfjaþróun og/eða GMP lyfjaframleiðslu (kostur)
- Reynsla af rannsóknarvinnu (kostur)
- Hæfni í mannlegum samskiptum og tileinkar sér nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góða tölvukunnáttu, góða íslensku- og enskukunnáttu.
Fríðindi í starfi
- Mötuneyti
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur17. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFræðigreinarRannsóknirSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSkýrslurVinnsla rannsóknargagna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (11)

Deildarstjóri gæðamats
Lyfjastofnun

Hópstjóri gæðamála og lyfjagátar
Icepharma

Reyndur sérfræðingur í gæðamálum samsettra lyfja og tækjaafurða / Combination Products & Device
Alvotech hf

Sérfræðingur í pökkunardeild Coripharma
Coripharma ehf.

Framleiðslutæknir / Aseptic Processing Technologist
Alvotech hf

Hefur þú áhuga á að starfa við umsjón rannsóknarstofa? / We are seeking a Lab Manager
Alvotech hf

Sumarstörf hjá Alvotech / Summer positions at Alvotech
Alvotech hf

Sérfræðingur í gæðatryggingardeild (QA Specialist)
Kerecis

Sérfræðingur á framleiðslueiningu ísótópastofu
Landspítali

Lyfja Ísafirði - Ert þú næsti lyfjafræðingur Lyfjuliðsins?
Lyfja

Lyfjafræðingar - Lyf og heilsa
Lyf og heilsa