
Coripharma ehf.
Coripharma er nýsköpunarfyrirtæki í Hafnarfirði sem þróar og framleiðir samheitalyf fyrir önnur lyfjafyrirtæki á erlendum mörkuðum.
Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það vaxið hratt og undirbýr nú útflutning á tugum lyfja. Í dag starfa um 220 manns hjá Coripharma. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Prentumsjón / Artwork Coordinator
Coripharma leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi í prentumsjón (artwork coordination) hjá Innkaupa- og áætlanadeild. Þú munt vinna við fjölbreytt og krefjandi verkefni, hafa samskipti við viðskiptavini og prentsmiðjur og tryggja gæði og tímasetningu prentverka frá frumgögnum til útgáfu. Ef þú hefur reynslu úr prentiðnaði, sterka þekkingu á grafískum forritum og góða samskiptahæfileika, þá viljum við heyra frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirferð frumgagna (technical approval)
- Yfirferð prófarka og gangsetning prentunar
- Samskipti við viðskiptavini og prentsmiðjur
- Miðla upplýsingum til annara deilda um stöðu verkefna
- Tryggja að verkefni séu unnin innan skilgreindra tímamarka.
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í prentsmíði, hönnun eða grafískri miðlun
- Starfsreynslu og/eða þekkingu á prentiðnaði
- Þekkingu á grafískum forritum (Adobe)
- Frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Nákvæm og öguð vinnubrögð
- Vinna vel sjálfstætt og með öðrum.
- Framúrskarandi ensku- og tölvukunnáttu
Fríðindi í starfi
- Mötuneyti
- Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt2. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
Adobe IllustratorFagmennskaHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiPrentmiðlarSjálfstæð vinnubrögðUmbúðahönnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)


