

Lyfjafræðingar - Lyf og heilsa
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum lyfjafræðingum til starfa í apótekum félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða fjölbreytt og líflegt starf þar sem áhersla er lögð á faglega þjónustu við viðskiptavini.
Starfssvið:
Fagleg ábyrgð á afgreiðslu lyfja samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsölu.
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf í lyfjafræði
- Gilt starfsleyfi
- Brennandi áhugi á þjónustu
- Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í hóp
Hvað býður Lyf og heilsa?
- Frábær samvinna innan keðju apóteka
- Samkeppnishæf laun
- Góð kjör fyrir starfsmenn á vörum Apótekarans og Lyf og heilsu
- Öflugt starfsmannafélag
Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Fríður S. Þormar, mannauðs- og gæðastjóri, [email protected] og Sigrún Erlendsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, [email protected].
Um Lyf og heilsu:
Lyf og heilsa á og rekur 27 lyfjaverslanir undir merkjunum Lyf og heilsa, Apótekarinn, Garðsapótek og Apótek Hafnarfjarðar. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, SA Lyfjaskömmtun og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.
Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.Félagið er á spennandi tímamótum með nýju eignarhaldi og munu leyfishafar taka virkan þátt í mótun félagsins til framtíðar.
Íslenska