Lyfjastofnun
Lyfjastofnun

Deildarstjóri gæðamats

Lyfjastofnun óskar eftir að ráða deildarstjóra gæðamats, sem heyrir undir svið mats og skráningar lyfja. Við leitum að drífandi, sveigjanlegum og jákvæðum leiðtoga til að leiða öflugan hóp starfsfólks. Deildarstjóri er ábyrgur fyrir daglegu skipulagi deildar, forgangsröðun verkefna og málefnum starfsmanna í samráði við sviðsstjóra og hefur auk þess umsjón með fjölbreyttum verkefnum. Um fullt starf er að ræða.

Hlutverk deildar:

Starfsmenn deildar meta skráningargögn markaðsleyfisumsókna í samræmi við kröfur evrópskra staðla sem við koma gæðamati, aðgengismati og lyfjagát nýskráninga. Þetta felur í sér mat á nýskráningum, endurnýjun markaðsleyfa og umsóknum um breytingar á markaðsleyfum. Deildin veitir vísindaráðgjöf og tryggir ferla- og verkefnastýringu matsferla. Deildarstjóri tekur jafnframt virkan þátt í faglegum verkefnum deildar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Dagleg stýring og umsjón með verkefnum innan deildar
  • Miðlun upplýsinga og leiðbeiningar um framkvæmd verkefna deildarinnar
  • Ábyrgð og umsjón með mati á skráningagögnum sem undir deildina heyrir
  • Ábyrgð og umsjón með mati á breytingum og viðhaldi markaðsleyfa lyfja
  • Umsjón með mannauðsmálum innan deildar
  • Samskipti við markaðsleyfishafa lyfja og lyfjastofnanir í Evrópu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Meistarapróf í lyfjafræði, efnafræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Farsæl reynsla af stjórnun mannauðs eða verkefna er kostur
  • Þekking eða reynsla á sviði lyfjaskráninga eða viðfangsefnum starfsins
  • Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
  • Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli. Kunnátta í norðurlandamáli er kostur
  • Góð tölvukunnátta

Um Lyfjastofnun:

Hlutverk Lyfjastofnunar er að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum, faglegri þjónustu og hlutlausri upplýsingagjöf byggðri á nýjustu þekkingu. Lyfjastofnun heyrir undir heilbrigðisráðuneytið og sér um að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 70 starfsmenn. Lyfjastofnun starfar eftir mannauðsstefnu sem miðar að því að hafa helgað starfsfólk, rétt fólk á réttum stað og að vera eftirsóknarverður vinnustaður. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is.

Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur20. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vínlandsleið 12-14, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.LyfjafræðingurPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar