
Eldum rétt
Eldum rétt er netverslun sem stofnuð var árið 2014. Eldum rétt býður viðskiptavinum sínum matarpakka með uppskriftum og hráefni í réttu magni til að elda hollar og bragðgóðar máltíðir, með sem minnstri fyrirhöfn. Markmið Eldum rétt er að gera eldamennskuna skemmtilegri og samverustundir fjölskyldunnar fleiri og betri.
Í hverri viku geta viðskiptavinir raða saman réttum vikunnar í sinn matarpakka. Valið stendur á milli 22 rétta sem breytast í hverri viku og gerist fjölbreytnin því ekki mikið meiri. Með því að afhenda viðskiptavinum 2-5 rétti á sama tíma sparast bæði tími og orka. Öllum hráefnum er handpakkað svo hægt sé að tryggja hámarks ferskleika og gæði hverju sinni. Eldum rétt er leiðandi á þessum markaði og býður upp á ferska og holla lausn fyrir fjölskyldur og einstaklinga.
Pöntunarfrestur spilar lykilhlutverk í rekstri og þjónustu Eldum rétt. Viðskiptavinir panta með minnst fimm daga fyrirvara en með því fá þeir ferskari hráefni, meiri fjölbreytni, minni matarsóun og skilja eftir sig minna kolefnisfótspor. Í framleiðsluferlinu er tryggð lágmarks matarsóun þar sem pantað er nákvæmt magn hráefna frá birgjum og því er pakkað í rétta skammta til viðskiptavina.
Eldum rétt hefur gjörbylt neyslumynstri viðskiptavina sinna og eru nú mörg þúsund landsmanna sem borða Eldum rétt í hverri viku.
----
Eldum rétt is an online store founded in 2014. Eldum rétt offers its customers food packages with recipes and ingredients in the right amounts to cook healthy and tasty meals with as little effort as possible. The goal of Eldum rétt is to make cooking more fun and create more time for family moments.
Each week, customers can customize their meal packages by choosing from 22 dishes that change every week, ensuring a wide variety of options. By delivering 2-5 dishes to customers at the same time, both time and energy are saved. All ingredients are carefully hand-packed to ensure maximum freshness and quality every time. Eldum rétt is a leader in this market and provides a fresh and healthy solution for families and individuals.
The order deadline plays a key role in Eldum rétt's operation and service. Customers are required to place their orders at least five days in advance, ensuring that they receive fresher ingredients, more variety, generate less food waste, and have a smaller carbon footprint. In the production process, minimal food waste is guaranteed as the exact amount of raw materials is ordered from suppliers and packed in the right portions for customers.
Eldum rétt has revolutionised habits of its customers, with many thousands of people now enjoying Eldum rétt meals every week.

Sérfræðingur í tæknimálum og rekstri
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á stafrænni tækni og nýtingu á henni til að auka skilvirkni í rekstri og framleiðsluferlum ásamt því að lágmarka mistök.
Mörg mismunandi verkefni eru í boði og myndum við sníða starfið að hæfileikum viðkomandi aðila.
Verkefnin geta verið þverfagleg og tengjast rekstrarstjórnun, kerfisstjórnun en einnig hugbúnaðarþróun með áherslu á þarfagreiningu og verkefnastjórnun.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun í rekstrar-, iðnaðaðar-, hugbúnaðarverkfræði, tölvunarfræði eða sambærileg.
Reynslu á forritun er kostur.
Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót.
Góð tölvuþekking.
Helstu verkefni og ábyrgð
Tryggja að framleiðslusvið hafi aðgang að réttum upplýsingum á réttum tíma.
Auka þverfaglega skilvirkni með því að þróa ferli og staðla.
Koma auga á tækifæri fyrir sjálfvirknivæðingu. Skilgreina, áætla og framfylgja verkefnum.
Bæta gæðastjórnum með því að útbúa gátlista og skýrt verklag sem viðhaldið er með tölvukerfum.
Bera ábyrgð á því að öll kerfi séu virk, uppfærð og nákvæm.
Fara yfir ábendingar frá viðskiptavinum, forgangsraða og sjá til þess að úrbætur eigi sér stað.
Auglýsing birt25. ágúst 2021
Umsóknarfrestur5. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Smiðjuvegur 4B, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaApp-forritunBakendaforritunFrumkvæðiGagnagreiningHönnun ferlaHugbúnaðarprófanirSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðVefforritunVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Taktu forystu í kerfinu sem bjargar mannslífum!
Alda Öryggi ehf.

Sérfræðingur í netkerfum
Advania

Gæða- og umhverfisstjóri
Ferskar Kjötvörur

Sérfræðingur við vega-, gatna- og stígahönnun
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Efnaverkfræðingur á sviði umhverfisráðgjafar
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Deildarstjóri gæðadeildar
Landspítali

Physics modelling of thermodynamics and heat transfer
Hydram Dynamics

Software engineer
Rivvo