Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Sérfræðingur í söluáætlunum - tímabundið

Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður sem hefur djúpar rætur og 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað í alþjóðlegu umhverfi þar sem unnið er með sterkustu vörumerkjum heims.

Vegna fæðingarorlofs, er laust tímabundið starf sérfræðings í söluáætlunum hjá CCEP. Í starfinu felst umsjón með gerð söluáætlana (rolling forecast) hjá fyrirtækinu í samstarfi við sölu-og markaðssvið.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með gerð söluáætlana (rolling forecast)
  • Dagleg eftirfylgni með þjónustustigi, vöruframboði og komudagsetningum á vörum
  • Greiningarvinna
  • Umsjón með lykilmælikvörðum á sviði áætlanagerða, með það að markmiði að styðja við tekjur og lágmarka kostnað
  • Eftirfylgni með rýrnun og rýrnunarhættu
  • Teymisvinna, ferla og umbótaverkefni í samráði við yfirmann

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði verkfræði eða viðskiptafræði
  • Reynsla á sviði áætlanagerðar og greiningarvinnu er kostur
  • Haldbær reynsla af notkun Excel og greiningarvinnu
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Sjálfstæð vinnubrögð og greinandi hugsun
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í hópi
  • Geta til að vinna undir álagi og bera ábyrgð
  • Sveigjanleiki, víðsýni og hæfni til að vinna í flóknu umhverfi er mikilvæg til að ná árangri.

Ráðningartíminn er 8 mánuðir. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í nóvember nk.

Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Við viljum fá sem fjölbreyttastar umsóknir frá fólki af öllum kynjum og af ólíkum bakgrunni. Hafðu samband ef þú ert efins.

Nánari upplýsingar veitir Vala Rún Gísladóttir [email protected] en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningavef CCEP.

ATH ekki hafa neina sérstafi, tölustafi eða bil í nafni viðhengja, annars er ekki hægt að senda inn umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 25.sept. 2022

Í samræmi við jafnréttisstefnu okkar hvetjum við alla einstaklinga sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.

Auglýsing birt15. september 2022
Umsóknarfrestur25. september 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Stuðlaháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.Microsoft Excel
Starfsgreinar
Starfsmerkingar