

Sérfræðingur í sjóðastýringu
Kvika eignastýring leitar að öflugum sérfræðing í sjóðstýringu. Við óskum eftir metnaðarfullum einstakling með góða samskiptahæfni og reynslu af sambærilegu starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greiningar og eftirfylgni með fjárfestingum
- Undirbúningur og utanumhald fjárfestinga
- Gagnavinnsla og greining gagna
- Skýrslugjöf til stjórnenda og stjórnar
- Upplýsingagjöf til fjárfesta
- Aðkoma að uppgjörum og ársreikningum sjóða
- Aðstoð við skjalagerð vegna fjárfestinga
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Próf í verðbréfaviðskiptum kostur
- Þekking og reynsla á SQL er kostur
- Framúrskarandi greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu talna og gagna
- Góð hæfni í framsetningu gagna, sjálfstæð, nákvæm og öguð vinnubrögð
- Góð skipulagshæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Metnaður og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni
Kvika eignastýring er leiðandi í eignastýringu og fjárfestingastarfsemi hér á landi með um 470 milljarða í stýringu. Félagið veitir alhliða fjármálaþjónustu með áherslu á árangur og langtímahagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að veita viðskiptavinum breitt þjónustuframboð til þess að fjárfesta innanlands sem og á erlendum mörkuðum. Meðal þjónustuframboðs má nefna einkabankaþjónustu, sjóðastýringu, framtakssjóði og fjárfestingarráðgjöf ásamt persónulegri þjónustu frá sérfræðingum okkar.
Umsóknarfrestur er til og með 8. september 2024
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jónas R. Gunnarsson, forstöðumaður sjóðastýringar, [email protected]
Íslenska










