Sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf
Fyrirtækjaráðgjöf EY leitar að sérfræðingi í fyrirtækjaráðgjöf. Fyrirtækjaráðgjöf vinnur náið með viðskiptavinum sínum allt frá mörkun stefnu að framkvæmd fyrir allar ákvarðanir er varða fjármuni og innviði starfseminnar. Hvernig fyrirtæki stjórna fjármunum sínum og innviðum í dag, ákvarðar samkeppnisstöðu þeirra í framtíðinni. EY veitir ráðgjöf til fyrirtækja og opinberra aðila við meðhöndlun fjármuna til að verja eða auka virði sitt og bæta frammistöðu og stýra áhættu þvert á alla þætti starfseminnar.
Við leitum að einstakling sem vinnur vel í teymi og hjálpar okkur og viðskiptavinum okkar að ná árangri. Hjá EY munt þú hafa tækifæri til að byggja upp einstaka starfsreynslu. Við munum styðja þig á þinni vegferð við að ná þínum faglegu markmiðum og rækta þína leiðtogahæfileika í alþjóðlegu og krefjandi umhverfi.
Ef þú brennur fyrir fjármálum fyrirtækja, sýnir frumkvæði og vilt ná langt þá erum við teymið fyrir þig.
Menntunar- og hæfniskröfur
Meistaragráða í verkfræði, fjármálum fyrirtækja, viðskiptum, stærðfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Sýna góða verkefnastjórnunar- og leiðtogahæfileika
Búa yfir góðum samskiptahæfileikum og getu til að vinna vel í teymum
Geta til að leysa flókin viðfangsefni, talnaglögg/talnaglöggur og vera lausnamiðuð/-miðaður
Sýna frumkvæði, vinna af heilindum og leggja áherslu á fagleg vinnubrögð
Búa yfir yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu í töluðu og rituðu máli og eiga auðvelt með að setja fram efni og gögn
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna að verkefnum tengdum fyrirtækjaráðgjöf þvert á atvinnugreinar og svið. Verkefnin felast m.a. í kaupa- og söluferlum fyrirtækja, virðismötum, áreiðanleikakönnunum og stefnumótun fyrirtækja
Byggja upp viðskiptasambönd og koma auga á ný tækifæri sem færa viðskiptavinum okkar langtímavirði
Vinna í teymi, styðja aðra teymismeðlimi á þeirra vegferð og læra af þeim um leið
Nánari upplýsingar er að finna í umsóknarformi
Fríðindi í starfi
Íþróttastyrkur að fjárhæð kr. 65.000 á ári
Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa umhverfisvænan ferðamáta
Við bjóðum upp á sveigjanleika hvað varðar vinnutíma og staðsetningu
Við bjóðum upp á samkeppnishæf laun þar sem við metum frammistöðu eftir árangri.
Háskólanám í samvinnu við Hult Viðskiptaháskólann í USA, í boði er MBA nám sem og Mastergráða í gagnagreiningum frítt fyrir starfsfólk EY
Niðurgreiðsla á hádegismat á völdum veitingastöðum í Borgartúni þar sem mötuneyti er ekki til staðar á starfsstöð