
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA)
Fræðslumiðstöðin atvinnulífsins er sérfræði- og þróunarsetur fyrir framhaldsfræðslu á Íslandi. Hlutverk okkar er að veita fólki á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið námi á framhaldsskólastigi, tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína. Það gerum við meðal annars með því að greina hæfnikröfur starfa, vinna að þróun raunfærnimats, auka framboð á vottuðu námi og efla ráðgjöf um nám og störf. Allt okkar starf miðast að hagsmunum atvinnulífsins og markhópsins.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er í eigu SA, ASÍ, BSRB, SÍS og fjármálaráðuneytis. Nánari upplýsingar um Fræðslumiðstöð atvinnulífsins á www.frae.is
SÉRFRÆÐINGUR HJÁ HÆFNISETRI FERÐAÞJÓNUSTUNNAR
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar leitar að hugmyndaríkum, skapandi og öflugum liðsfélaga í starf sérfræðings. Helstu verkefni eru meðal annars fræðslu- og kynningarheimsóknir til fyrirtækja. Hæfnisetrið er vistað hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA). Sjá nánar á www.hæfni.is
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Styðja við, þróa og efla hæfni og fagmennsku stjórnenda og starfsfólks í ferðaþjónustu, m.a. á sviði sjálfbærni og stafrænna lausna
-
Náin samvinna við atvinnulíf og hagaðila
-
Heimsóknir og samskipti til að stuðla að samvinnu um fræðslu og menntun
-
Greina fræðsluþarfir fyrirtækja í ferðaþjónustu og þróa lausnir
-
Miðlun upplýsinga og efnis á samfélagsmiðla og efnisveitur
-
Textagerð og efnissköpun
-
Ýmis önnur verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Menntun og/eða rík reynsla sem nýtist í starfi
-
Haldgóð reynsla af fræðslu- og/eða mannauðsmálum
-
Rík samstarfs- og samskiptahæfni
-
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Reynsla af kynningar- og markaðsmálum æskileg
-
Reynsla af starfi í ferðaþjónustu er kostur
-
Mjög góð tölvufærni
-
Góð færni, bæði í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Auglýsing birt14. júní 2024
Umsóknarfrestur28. júní 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skipholt 50B, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Sérkennslustjóri / aðstoðarleikskólastjóri
Mánaland

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Sérkennsla - Stuðningur
Leikskólinn Furuskógur

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Fræðsluráðgjafi - Viltu nýta reynslu þína til að hjálpa vinnustöðum að ná árangri með fræðslu?
Akademias

Velferðarsvið – Teymisstjóri í barnaverndarþjónustu
Reykjanesbær

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Liðsfélagi í markaðs- og framleiðsludeild
Iðan fræðslusetur

Frístundaleiðbeinandi í Lágafellsskóla
Lágafellsskóli

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár.
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennari/þroskaþjálfi óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir