Nova
Nova
Nova

Séní í samskiptum & stafrænum markaðsmálum

Séní í samskiptum og stafrænum markaðsmálum ber ábyrgð á að viðhalda og þróa markaðsefni á nova.is með því að markmiði að auka heimsóknir og bæta upplifun notenda á vefnum. Viðkomandi sér jafnframt um alla stafræna markaðssetningu, utanumhald og samræmingu birtinga á keyptum og eigin miðlum, auk mótun og yfirferð textaefnis sem þar birtist.

Á þann hátt er starfið tvíþætt og hefur þar af leiðandi áhrif á ásýnd og upplifun viðskiptavina á bæði stafrænum og hefðbundnum snertiflötum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Samskipti
Viðkomandi sér um að halda rödd Nova skýrri og skemmtilegri í öllu markaðsefni; passar upp á að allar birtingar, hvort sem er á netinu eða í hefðbundnum miðlum, séu í takt við brandið og vinnur náið með birtingaraðilum. Einnig heldur viðkomandi utan um skjálausnir, sér um að Nova Hjálpin sé alltaf uppfærð og svarar fljótt og vel skilaboðum og styrktarbeiðnum.

Nova.is & stafræn markaðsmál
Hér sér viðkomandi um að nova.is sé alltaf uppfært með nýjasta og ferskasta markaðsefninu, en í því felst að uppfæra texta, myndir og upplýsingar á vefnum og tryggja að vörur í vefverslun séu vel framsettar. Viðkomandi greinir gögn, finnur tækifæri til að bæta upplifun viðskiptavina og leiðir áfram verkefni sem hámarka upplifun og árangur á vefnum.

Viðkomandi sér einnig um utanumhald í öllu sem tengist stafrænum markaðsmálum. Í því felst að sjá um skemmtilegasta fréttabréf í heimi og alla sjálfvirku tölvupóstana og SMS-in okkar. Jafnframt sér viðkomandi um kostaðar markaðsaðgerðir á leitarvélum, samfélagsmiðlum og herferðir í Playable-tækifæratólinu okkar.

Menntunar- og hæfniskröfur

Viðkomandi þarf að búa yfir menntun/reynslu og brennandi áhuga á bæði hefðbundnum og stafrænum markaðsmálum, veflausnum og verkefnastjórnun.

Að sama skapi þarf viðkomandi að hafa ríkt hugmyndaauðgi og haldbæra reynslu af textagerð og mótun markaðsskilaboða. Það er því mikill styrkleiki sé viðkomandi hnyttinn og með sterkt vald á íslensku máli.

Auglýsing birt23. júní 2025
Umsóknarfrestur3. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Email markaðssetningPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.Vefumsjón
Starfsgreinar
Starfsmerkingar