Blue Lagoon Skincare
Blue Lagoon Skincare
Blue Lagoon Skincare

Sérfræðingur í efnissköpun

Blue Lagoon Skincare leitar að hugmyndaríkum, skapandi og reynslumiklum sérfræðingi í efnissköpun til að sjá um framleiðslu á efni fyrir stafræna miðla.

Fyrirtækið starfar á alþjóðlegum snyrtivörumarkaði og annast þróun, framleiðslu, markaðssetningu og sölu á húðvörum undir vörumerkinu Blue Lagoon Skincare.

Viðkomandi fær því tækifæri til að taka þátt í skemmtilegum verkefnum með öflugu alþjóðlegu sölu- og markaðsteymi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Framleiðsla og vinnsla á efni (ljósmyndir og myndbönd) í samvinnu við hagaðila fyrir birtingu á samfélagsmiðlum(Meta, Tik Tok, YouTube), fyrir vefsíðu Blue Lagoon Skincare, sem og önnur sértæk verkefni.
  • Mótun og eftirfylgni stefnu efnismála í samvinnu við sölu- og markaðsteymi og tryggja að það styðji við stærri markaðsherferðir og markmið.
  • Bregðast við tækifærum sem myndast á hverjum tíma hvað varðar myndefni og samstarf.
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd efnissköpun og miðlun efnis.

Hæfniskröfur

  • Að minnsta kosti 3-5 ára reynsla af notkun og framleiðslu á efni fyrir eftirfarandi samfélagsmiðla: Meta, Tik Tok, YouTube.
  • Menntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi.
  • Framúrskarandi í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
  • Reynsla af hugmyndavinnu og þróun skapandi efnis.
  • Reynsla af textagerð á íslensku og ensku fyrir samfélagsmiðla er nauðsynleg.
  • Þekking á hönnun og reynsla af notkun hönnunarforrita fyrir stafræna markaðssetningu er mikill kostur.
  • Reynsla af birtingu á lifandi fréttaefni er kostur
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði ræðu og riti.
  • Öguð og nákvæm vinnubrögð.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2025.

Viðkomandi mun hafa starfsstöð í skrifstofuhúsnæði Bláa Lónsins í Urriðaholti í Garðabæ.

Í boði er starf á lifandi og skemmtilegum vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, eins og heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins ásamt ýmsum öðrum fríðindum sem starfsfólki Bláa Lónsins bjóðast.

Auglýsing birt18. júní 2025
Umsóknarfrestur1. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Urriðaholtsstræti 2-4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar