

Kannt þú að skapa efni fyrir samfélagsmiðla? og elskar þú snyrtivörur?
Ertu skapandi, skipulögð/skipulagður og með gott auga fyrir því hvað grípur athygli á Instagram og TikTok og heimasíðum?
Við hjá Beautybox leitum að skapandi einstakling í hlutastarf sem sér um að búa til, skipuleggja og halda utan um efni á samfélagsmiðlum og í vefverslun. Vinnutími og prósenta getur verið sveigjanlegur, en við leitum af einstakling sem getur mætt daglega og deilt frá margvíslegum verkefnum fyrirtækisins.
-
Skipuleggja og búa til efni fyrir samfélagsmiðla, sérstaklega Instagram og TikTok (myndir, story, reels, textar o.fl.)
-
Taka þátt í hugmyndavinnu og koma með tillögur að nýju efni og áherslum
-
Vinna með teymi við dagleg verkefni og stuðla að samræmdri og áhrifaríkri miðlun
- Að auki er kostur að geta:
-
Skrifað fjölbreytt efni, t.d. blogg, vörutengdar greinar, fréttabréf og texta fyrir lendingarsíður
-
Hannað eða sett upp einfaldar lendingarsíður og kynningarsíður eftir þörfum
-
-
Góð tilfinning fyrir því hvað grípur á samfélagsmiðlum og hvernig efni talar til viðskiptavina
- Ófeimin(n) að vera sjálfur í mynd - og fá aðra með sér.
- Kann að klippa saman grípandi efni.
-
Hæfni í að skrifa skýrt, stílhreint og í takt við andrúmsloft og stíl vörumerkis
-
Skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt og halda utan um eigin verkefni
-
Reynsla af því að vinna með forritum eins og Canva, Asana, Mailchimp eða sambærilegum kerfum er kostur
-
Almenn tæknifærni – t.d. að setja upp einfaldar lendingarsíður eða færa efni á milli miðla
-
Áhugi á snyrtivörum og innsýn í hvernig gott efni styður við sölu og þjónustu
-
Ekki gerð krafa um formlega menntun – en reynsla og/eða verkefnadæmi sem sýna getu eru mikils metin
- Starfsmenn fá reglulega snyrtivörugjafir því mikilvægt er að prófa vörur til þess að vita hvernig á að selja þær.













