

Olís Dalvík leitar af kraftmiklum vaktstjóra frá og með 1. september
Við hjá Olís óskum eftir ábyrgðarfullum og kraftmiklum vaktstjóra á þjónustustöð okkar á Dalvík. Unnið er eftir vaktaplani 2-2-3 og vinnutími er frá 09:00-21:00 frá 1. september 2025
Undir verksvið vaktstjóra fellur:
Ábyrgð á störfum og skipulagi innan vaktar,
Afgreiðsla og sala
Vörumóttaka, framstilling
Almenn þjónusta við viðskiptavini
Annað tilfallandi.
Hæfniskröfur:
• Snyrtimennska og reglusemi
• Jákvæðni, dugnaður, þjónustulund og stundvísi
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Lífsreynsla, aldur og þroski eru æskilegir eiginleikar við ráðningu í störf hjá okkur og hvetjum við jafnt ungt fólk sem eldra að sækja um.
Frekari upplýsingar veitir verslunarstjóri á staðnum, einnig má senda tövlupóst á [email protected]
Umsóknir skilist inn í gegnum vefform 50skills
https://jobs.50skills.com/olis/19863/













