Icelandia
Icelandia
Icelandia

Vaktstjóri í afgreiðslu

Ert þú náttúrulegur leiðtogi með ástríðu fyrir framúrskarandi þjónustu? Icelandia leitar að metnaðarfullum vaktstjóra í afgreiðslu á Bsí til að hafa umsjón með þjónustu okkar og tryggja að farþegar okkar fái ógleymanlega upplifun. Staðan er tímabundin með möguleika á framlengingu.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun júlí.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðafólki með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða, styðja og hvetja starfsfólk í afgreiðslu.
  • Skipuleggja og hafa umsjón með daglegum rekstri til að tryggja skilvirka þjónustu.
  • Taka á móti flóknari fyrirspurnum og kvörtunum frá viðskiptavinum og leysa úr málum á faglegan hátt.
  • Viðhalda þjónustustigi og hámarka nýtingu á unnum tíma.
  • Fylgjast með frammistöðu teymisins og veita uppbyggilega endurgjöf.
  • Tryggja að starfað sé í samræmi við reglur og stefnur fyrirtækisins.
  • Gera uppgjör og bókhald.
  • Unnið er í 2-2-3 vaktafyrirkomulagi, 6:00 – 17:30
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustustörfum, kostur að hafa reynslu í ferðaþjónustu.
  • Hefur unnið sem vaktstjóri eða í sambærilegum störfum.
  • Sterkir leiðtoga- og samskiptahæfileikar.
  • Hæfni til að sinna mörgum verkefnum samtímis og vinna undir álagi í hraðskreiðu umhverfi.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Mjög góð kunnátta í ræðu og riti á ensku, góð kunnátta á íslensku. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
  • Jákvæð og lausnamiðuð hugsun.
  • Hæfni til að hvetja og styðja starfsfólk í starfi.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt verkefni í ört vaxandi vinnuumhverfi.
  • Frábær vinnuaðstaða og sveigjanleiki.
  • Líkamsræktarstyrkur og sálfræðistyrkur.
  • Möguleikar á þróun í starfi.
Auglýsing birt18. júní 2025
Umsóknarfrestur7. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Vaktaskipulag
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar