

Sölufólk óskast – í fullt starf og/eða hlutastarf!
Ert þú sölukona/maður/drottning með brennandi áhuga á snyrtivörum og frábæra þjónustulund?
Við hjá Beautybox leitum að snyrtivörudrottningum með hæfileika í sölu og ráðgjöf. Við erum opin fyrir báðu:
-
Fullt starf
Vinnutími: 9–17 virka daga, möguleiki á föstum eða aukavöktum á laugardögum (11–16). -
Hlutastarf
Á virkum dögum, laugardögum, löngum opnunum og kvöldnámskeiðum. Starfshlutfall samkomuatriði.
Við hjá Beautybox viljum við veita viðskiptavinum okkar meira en bara hefðbundna afgreiðslu. Þess vegna skiptir þetta hlutverk okkur miklu máli. Helstu verkefni og ábyrgð:
-
Veita persónulega og faglega ráðgjöf í verslun - því kúnninn okkar á aðeins það besta skilið.
-
Hjálpa viðskiptavinum að finna réttu vörurnar og útskýra hvernig þær nýtast best. Sýna hvernig vörurnar eru notaðar.
-
Bjóða upp á húðumhirðu- og förðunarráðgjöf sem byggir á þekkingu, þjónustulund og raunverulegum áhuga.
-
Sjá um pökkun netpantana – og sinna öðrum almennum verslunarstörfum sem gera upplifun kúnnans heildstæða.
-
Brennur fyrir snyrtivörum og elskar að deila þekkingu og ráðum með öðrum.
(Menntun í förðun eða snyrtifræði er plús – en mikill áhugi og góð innsýn skipta meira máli.) -
Hefur góða þjónustulund, er hlustandi og getur lesið í þarfir viðskiptavinarins – og leiðbeint með fagmennsku og hlýju.
-
Er með sterka sölutaug og nýtur þess að mæta markmiðum – en þó með það að leiðarljósi að upplifun viðskiptavinarins skiptir öllu máli.
-
Mætir til leiks með faglega framkomu, sjálfstæði og getur tekið frumkvæði í dagsins verkefnum.
-
Talar og skrifar góða íslensku og getur tjáð sig á ensku þegar þarf.
-
Hefur reynslu úr verslun eða þjónustu – en það er ekki skilyrði ef viðhorfið og viljinn eru til staðar.
- Snyrtivörugjafir reglulega. Við viljum að þú prófir vörurnar – til að geta mælt með þeim af reynslu og sannfæringu.













