

💼 Imperial Akureyri óskar eftir metnaðarfullum sérfræðingi í netmarkaðssetningu og stafrænum r
Um starfið
Við hjá Imperial Akureyri leitum að skapandi, hugmyndaríkri og drífandi manneskju sem vill taka þátt í spennandi vegferð – að efla og þróa stafræna nærveru okkar á netinu. Við erum að flytja í nýtt og sýnilegt húsnæði í hjarta Akureyrar og á sama tíma að byggja upp öfluga netverslun og stafrænt umhverfi í kringum vörumerkið Imperial.
Þetta starf snýst um að styrkja stafræna markaðssetningu, netverslun og samfélagsmiðlanærveru Imperial með áherslu á nútímalegar lausnir og skýra sý
Staðsetning: Akureyri – hluti vinnunnar getur verið unnin í fjarvinnu
Starfshlutfall: Sveigjanlegt – hlutastarf eða fullt starf (samkomulag)
Umsóknarfrestur: Opið til umsóknar
Við bjóðum:
• Tækifæri til að móta stefnu og nærveru öflugs vörumerkis
• Sveigjanlegan vinnutíma og möguleika á fjarvinnu að hluta
• Nútímalegt vinnuumhverfi með skýra framtíðarsýn
• Mikla ábyrgð og sköpunarmöguleika
• Nánd við samfélagið á Akureyri og tengingu við þjóðlegan stíl og alþjóðlega strauma
Um Imperial
Imperial Akureyri er rótgróin verslun með skýra fagurfræðilega stefnu og sterka tengingu við samfélagið á Akureyri. Eftir 17 ára rekstur er nýr kafli að hefjast – með flutningi í miðbæinn og aukinni áherslu á netverslun og stafræna framtíð. Við viljum bjóða notendum heildarupplifun – bæði í verslun og á netinu – með sömu ástríðu, hugmyndaauðgi og þjónustulund og hefur einkennt Imperial frá upphafi.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur stutt kynningarbréf og ferilskrá á:
📧 [email protected]
Við hvetjum alla sem hafa tilfinningu fyrir þessu verkefni að sækja um – óháð aldri, kyni eða bakgrunni.
- Umsjón með netverslun Imperial á Shopify og í appinu okkar
- Dagleg umsjón með samsélagsmiðlum : Instragram,Facebook,TikTok
- Skipulagning og framkvæmd markaðsherferðar ( bæði lífræn og kostuð)
- Myndvinnsla , textagerð og framleiðsla á efni fyrir netmiðla og skjái
- Myndatökur af vörum í ljósmyndastúdio
- Greining og eftirfylgni á árnagri markaðsaðgerða
- Þáttaka í þróun á vörumerki og stefnu
Við leitum að einstaklingi sem :
- Hefur brennandi áhuga á tísku, markaðsetningu og samfélagsmiðlum
- Hefur reynslu af stafrænum markaðsverkfærum , sértaklega Shopify,Meta Business,TikTok og.fl.
- Er með gott auga fyrir fagurfræði og flæði
- Hugsar í lausnum og er sjálfstæður í vinnubrögðum
- er ákvæður,sveggjanlegur og tilbúin að vaxa með verkefninu













