Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Fjörður

Við hjá heilsugæslunni Firði leitum að jákvæðum og metnaðarfullum sálfræðingi til að koma til liðs við okkur. Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvang, fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu og vill stuðla að heilbrigði líðan barna og unglinga. Lögð er áhersla á að sálfræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu. Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni sálfræðing í ábyrgðarminna starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.

Heilsugæslunni er ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.


Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Sálfræðiþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri

·       Mat og greining á vanda barna og unglinga

·       Klínísk verkefni og vinnubrögð í samræmi við klínískar leiðbeiningar

·       Notkun sálfræðilegra prófa

·       Beitir gagnreyndum meðferðum og ráðgjöf

·       Þátttaka í námskeiðahaldi fyrir fagfólk, skjólstæðinga og/eða aðstandendur

·       Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

·       Samstarf og samráð við aðrar stofnanir í heilbrigðis- og félagsþjónustu

·       Þátttaka í þróun geð- og sálfræðiþjónustu í heilsugæslu

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði

·       5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg

·       Reynsla af greiningu og meðferð barna og unglinga

·       Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum

·       Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu

·       Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

·       Góð færni og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu

·       Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

·       Góð íslenskukunnátta skilyrði

·       Góð almenn tölvukunnátta

Fríðindi í starfi
  • Heilsueflingarstyrkur
  • Tækifæri til sí- og endurmenntunar
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt7. janúar 2025
Umsóknarfrestur28. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar