Nox Medical
Nox Medical

Reyndur bókari

Við leitum að metnaðarfullum og reynslumiklum einstaklingi til að ganga til liðs við fjármála teymið okkar. Sem bókari munt þú bera ábyrgð á fjölbreyttum verkefnum sem tryggja nákvæmni og áreiðanleika í fjárhagsgögnum okkar

Helstu verkefni

  • Umsjón með öllum þáttum viðskiptamanna- og lánadrottnabókhalds

  • Undirbúningur og bókun færslna.

  • Almenn bókhaldsvinna og regluleg afstemming bankareikninga.

  • Undirbúningur og framkvæmd greiðslna.

  • Aðstoð við gerð fjárhagsáætlana,og lokun mánaðar- og ársloka ásamt viðeigandi afstemmingum.

  • Eftirlit með, og úrbætur á bókhaldsfrávikum.

  • Tryggja fullt samræmi við íslensk skattalög, skil á virðisaukaskatti og veita aðstoð við endurskoðun.

  • Viðhalda nákvæmum fjárhagsgögnum og styðja við öflugt innra eftirlit.

  • Sinna öðrum tilfallandi verkefnum eftir þörfum hverju sinni sem og að taka virkan þátt í umbótaverkefnum og hagræðingu ferla innan fjármáladeildarinnar.

Hæfniskröfur og reynsla

  • Löggiltur bókari eða sambærileg menntun og góð reynsla í reikningshaldi.

  • Færni í bókhaldskerfum, helst Business Central, og góð kunnátta í Excel.

  • Góð þekking á meginreglum reikningshalds og fjárhagsuppgjörsstaðla.

  • Frábær greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og skipulagshæfni.

  • Mjög góð nákvæmni og athygli á smáatriðum.

  • Mjög góð enskufærni.

  • Hæfni til að sinna mörgum verkefnum á sama tíma.

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi.

Umsóknir um þetta starf, ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, mega vera á íslensku eða ensku

Við höfum áhuga á hæfileikaríku fólki sem deilir ástríðu okkar fyrir að bæta líf fólks. Nox Medical fagnar fjölbreytileika. Við teljum að grunnurinn að kraftmikilli og frumkvöðla starfsemi felist í sanngjörnu og inngildandi vinnuumhverfi. Menning fyrirtækisins okkar byggist á því að leiða saman ólíkar hugmyndir og einstaklinga til að hvetja til nýsköpunar og samvinnu.

Auglýsing birt4. júní 2025
Umsóknarfrestur18. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Uppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar