Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi

Aðalbókari

Rauði krossinn á Íslandi leitar að metnaðarfullum og öflugum aðila í starf aðalbókara á fjármálasvið félagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Um er að ræða fullt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með fjárhags-, launa- og viðskiptabókhaldi
  • Yfirumsjón með afstemmingum, árshlutauppgjörum og viðskiptayfirlitum
  • Gerð ársreikninga og samstæðuársreiknings í samvinnu við fjármálastjóra og endurskoðanda
  • Ábyrgð á þróun verkferla á fjármálasviði og verkstjórn bókhaldsteymis
  • Ábyrgð á VSK uppgjörum
  • Upplýsingagjöf og skýrslugerð til stjórnenda og starfsmanna
  • Önnur tengd verkefni í samráði við fjármálastjóra

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Próf í viðskiptafræði eða sambærileg menntun, menntun í reikningshaldi er kostur
  • Veruleg reynsla og góð þekking á bókhaldi og uppgjörum
  • Þekking á samstæðureikningsskilum
  • Framúrskarandi Excel kunnátta
  • Greiningarhæfni og nákvæmni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Lipurð í samskiptum og jákvætt hugarfar

Um Rauða krossinn á Íslandi:

Rauði krossinn á Íslandi er sjálfboðaliðasamtök sem starfa samkvæmt alþjóðlegum grundvallarreglum Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Samtökin vinna að mannúðarstörfum innanlands og erlendis, með það að markmiði að draga úr þjáningum og bæta líf fólks í viðkvæmri stöðu. Rauði krossinn reiðir sig á sjálfboðaliða um allt land og leggur ríka áherslu á virka þátttöku samfélagsins og mannúðlega nálgun í öllum sínum störfum. Hjá Rauða krossinum starfa 105 manns og virkir sjálfboðaliðar eru yfir 2500.

Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí 2025 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt24. júní 2025
Umsóknarfrestur8. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.AgressoPathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Uppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar