Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið

Félagsráðgjafi eða sérfræðingur í barna- og fjölskylduvernd

Laus er til umsóknar 80-100% staða ráðgjafa við barna- og fjölskylduvernd Múlaþings. Starfið er laust nú þegar.

Starfskraftur sinnir meðal annars barnaverndarmálum, félagslegri ráðgjöf, samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, samvinnu eftir skilnað sem og öðrum þeim störfum sem almennt tilheyra sviðinu.

Næsti yfirmaður er félagsmálastjóri.

Á fjölskyldusviði Múlaþings starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga og lögð er áhersla á teymisvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnsla barna- og fjölskylduverndarmála.
  • Ráðgjöf við foreldra og börn.
  • Ráðgjöf við aðra sem að málum barna koma.
  • Málstjóri barnaverndarmála.
  • Málstjóri í samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
  • Samstarf við aðrar stofnanir sem tengjast börnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða menntun á uppeldis- eða heilbrigðissviði.
  • Þekking og reynsla af félagsþjónustu og barnavernd er kostur.
  • Geta og vilji til samvinnu og hæfni til að starfa í teymi og hugsa í lausnum.
  • Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Góð alhliða tölvukunnátta, þekking á OneSystems er kostur.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Hreint sakavottorð.
  • Bílpróf.
Fríðindi í starfi

Styttri vinnuvika, heilsueflingarstyrkur

Auglýsing birt24. júní 2025
Umsóknarfrestur8. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VeiplausPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar