Þingeyjarsveit
Þingeyjarsveit
Þingeyjarsveit

AÐALBÓKARI

Þingeyjarsveit óskar eftir að ráða metnaðarfullan aðila í starf aðalbókara. Um er að ræða 100% starf sem heyrir undir sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Aðalbókari ber ábyrgð á bókhaldi Þingeyjarsveitar, stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins. Viðkomandi þarf að vera tilbúin til að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf í skemmtilegu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með bókhaldi sveitarfélagsins
  • Dagleg stýring og bókhaldsvinna
  • Afstemmingar, uppgjör, frágangur, gagnavinnsla og skýrsluskil
  • Áætlanagerð í samvinnu við stjórnendur sviða
  • Innra eftirlit í samráði við sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Upplýsingagjöf til stjórnenda
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við næsta yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða viðurkenndur bókari skilyrði
  • Þekking og reynsla af bókhaldsstörfum er skilyrði þ.m.t. afstemmingar og uppgjör
  • Góð færni í excel skilyrði
  • Þekking á Navision BC æskileg
  • Nákvæmni, samviskusemi og skipulagshæfileikar
  • Hæfni til að greina gögn og upplýsingar
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni
  • Jákvæðni og hæfni til samstarfs og samskipta sem og lausnamiðuð hugsun
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
Auglýsing birt18. júní 2025
Umsóknarfrestur6. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kjarni, 650 Laugar
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar